Þrír námsráðgjafar Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi heimsóttu skólann s.l. mánudag til að kynna sér starfsemi hans og aðstöðu alla; skoðuðu heimavistirnar og þvottahúsið, auk þess sem þau funduðu með námsráðgjafa, Grímu Guðmundsdóttur, og þáðu hádegisverð í mötuneytinu. Einum þeirra varð á orði, þar sem hann fylgdist með nemendum streyma í matinn, hve fallegt fólk væri í þessum skóla.
Það hófst kl 14.00 s.l föstudag og því lauk sólarhring síðar, frönskumaraþoninu. Tilefni þess er fyrirhuguð ferð frönskunema til Parísar í mars og þarna var verið að safna fé til fararinnar. Frönskukennarinn, Gríma Guðmundsdóttir fóðraði þátttakendur á allskyns efni: verkefnum, kvikmyndum (t.d. La vie en rose, Le petit Nicolas og 8 femmes, svo einhverjar séu nefndar), slúðurblöðum og ýmsu öðru. Auk vinnu við verkefnin, áhorfsins á kvikmyndirnar og lesturs slúðurblaðanna, stunduðu þáttakendur samtalsæfingar á frönsku af kappi og rifjuðu upp ýmislegt af því sem þeir hafa numið í fyrri áföngum, en nú eru þessir nemendur í FRA303. Frönsk tónlist myndaði síðan bakgrunninn fyrir þetta allt saman.
Samkaup á Laugarvatni styrkti maraþonið með drykkjum og snakki.
-pms
- byggt á punktum frá Ástu Gunnarsdóttur, þátttakanda.
- myndir í myndasafni
Það voru talsverð tímamót í félagslífi nemenda í ML í gærkvöld, 15. feb., en þá tók skólinn fyrsta sinni þátt í Mælsku- og rökræðukeppni framhaldsskólanna, MORFÍS. Keppnin fór fram í matsal skólans og fjölmenntu nemendur til að styðja sitt lið. Andstæðingurinn var Menntaskólinn á Akureyri, en með liði þeirra Akureyringa kom hópur af vel þjálfuðu klapp- og söngliði.
Það væri ekki rétt að halda því fram, að lið ML hafi rústað andstæðingum sínum, en þeir piltarnir í liðinu velgdu þeim verulega undir uggum og náðu sérlega góðum árangri, ekki síst í ljósi þess, að hér er engin hefð fyrir svona keppni, hvorki meðal liðsmannanna sjálfra né stuðningsmannanna. Hvorir tveggja ganga frá leik ósárir, stoltir og harla ákveðnir í að tileinka sér þá takta sem leiða til toppárangurs í þessari grein á komandi árum.
Síða 1 af 47