Leikrit ML-inga í Borgarleikhúsinu
Leikritið Menntavegurinn eftir Gísellu Hannesdóttur nemanda í 3F í ML verður sýnt á Unglistahátíðinni í Borgarleikhúsinu helgina 20. – 21. nóv.   Gísella er sjálf leikstjóri sýningarinnar og leikararnir eru einnig nemendur skólans, þau Agnes Fríða Þórðardóttir í 1N, Sigríður Ósk Jónsdóttir í 3N og Þrándur Ingvarsson í 1. N.
Menntavegurinn fjallar um skólagönguna og  er tileinkað öllum þeim sem hafa átt erfitt með að fóta sig ,,á hinum holótta Menntavegi,“  segir í fréttatilkynningu frá leikhópnum.