55 nýnemar eru innritaðir í Menntaskólann að Laugarvatni næsta skólaár. 52 þeirra fara á fyrsta ár, 26 í 1N og 26 í 1F, og 3 á annað ár.  111 eldri nemendur flytjast á milli bekkja og 3 eru endurinnritaðir í bekk.  Nemendafjöldi skólans verður því 169 næsta skólaár.  Ljóst er því að þröng verður á þingi og leita þarf leiða til að koma nokkrum nemendum fyrir annarsstaðar en á vistum hans þar sem þær rúma ekki þennan fjölda.  

Því miður þurfti skólinn að hafna nokkrum nemendum sem útskrifuðust úr grunnskóla í vor um skólavist og að auki fjölda nemenda sem höfðu eitthvað framhaldsskólanám að baki en náðu ekki mati inn á annað ár.  Nemendur sem luku grunnskóla í vor höfðu forgang og var því ekki hægt að innrita neinn umsækjanda á fyrsta ár sem lokið hafði grunnskóla árið 2009 og fyrr.

 

Skrifstofa Menntaskólans að Laugarvatni opnar að nýju fimmtudaginn 12. ágúst.  Senda má fyrirspurnir á ml@ml.is.

 

Njótið sumarsins í starfi og lífi.

hph