Á mánudaginn kemur verður kosið til nýrrar stjórnar Mímis, nemendafélags ML og kosningabarátta nemenda stendur nú sem hæst. Frambjóðendur veiða atkvæði með ýmsum ráðum  í von um að fá atkvæði samnemenda sinna að launum.

Veggspjöld hafa verið sett upp, auglýsingaborð með kynningarefni og alls kyns góðgæti fylla gjarnan ganga og annað kvöld, fimmtudagskvöld verða framboðsræður fluttar í N-stofu.

Í stjórn Mímis sitja 14 nemendur. Embætti stallara, varastallara, gjaldkera, tómstundaformanns, ritnefndarformanns og vef- og markaðsfulltrúa eru eins manns embætti. Fjögur eru skipuð tveimur einstaklingum, þ.e. jafnréttis- og skólaráðsfulltrúar, skemmtinefndaformenn, íþróttaformenn og árshátíðarformenn.

Væntanlega verður háspenna í lofti á aðalfundi nemendafélagsins næsta mánudagskvöld þegar atkvæði verða talin upp úr kjörkössum.

VS